Innlent

Leik­skólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og ný­árs

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Brynhildur Jónsdóttir, formaður fræðslu- og frístundanefndar Árborgar, sem fór yfir ýmis mál á fundinum í gær.
Brynhildur Jónsdóttir, formaður fræðslu- og frístundanefndar Árborgar, sem fór yfir ýmis mál á fundinum í gær. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nýtt tilraunaverkefni er að hefjast í leikskólum Árborgar þar sem ákveðið hefur verið að leikskólar verði lokaðir á mill jóla- og nýárs. Þá hefur menntuðum leikskólakennurum fækkað í leikskólum Árborgar, sem er mikið áhyggjuefni en sex leikskólar eru í sveitarfélaginu með um 660 börnum.

Brynhildur Jónsdóttir, formaður fræðslu- og frístundanefndar Árborgar og einn af bæjarfulltrúum D-listans í Árborg, sem er í hreinum meirihluta í bæjarstjórn var með opinn fund í gær hjá Sjálfstæðisflokknum í Árborg þar sem hún fjallaði um ýmis mál, m.a. leikskólamál í sveitarfélaginu. Sérstakt tilraunaverkefni mun hefjast 1. ágúst í sumar, sem mun standa yfir í ár með starfsemi leikskólanna.

„Við ætlum að vera með skráningardaga þar sem það verður skráning í dymbilviku og í haust og vetrarfríum og síðan verður leikskólinn opinn til klukkan 14:00 á föstudögum en skráningartímar verða frá 14:00 til 16:15 en eina skerðingin sem verður, en við verðum með lokað á milli jóla- og nýárs,“ segir Brynhildur.

Í Árborg eru sex leikskólar með um 660 börnum og um 180 starfsmönnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

1. ágúst í sumar breytist leikskólinn Árbær á Selfossi í Hjallastefnuleikskóla og verður þar með einkarekin.

„Mér líst bara mjög vel á það, það held ég allavega að sé bara gott skref. Þetta er til þess að auka val foreldra ef foreldrar óska eftir því að fara í svona einkarekna leikskóla,“ segir Brynhildur.

Á fundinum nefndi Brynhildur áhyggjur af menntun leikskólakennara, hver er staðan þar í Árborg?

„Það hefur bara verið áhyggjuefni og það sýnir sig að eftir að leyfið varð eitt leyfisbréf þá hefur tilhneigingin verðið sú að leikskólakennarar hafa verið að færast upp í grunnskóla og ekki komið til baka. Og það er alveg fækkun á menntunarstigi í leikskólum þannig að það er áhyggjuefni fyrir þá sem eru að reka leikskóla, leikskólastjórar,“ segir Brynhildur.

Glæra sem Brynhildur varpaði upp.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Önnur glæra, sem Brynhildur var með á fundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×